Mér sýnist vanta Flash spilara hjá þér

Nemendur Háskólans á Akureyri geta sótt um að búa á stúdentagörðum hjá Félagsstofnun stúdenta (FÉSTA). Í boði er allt frá einstaklingsherbergjum til þriggja herbergja íbúða. Garðarnir eru staðsettir á fjórum stöðum á Akureyri, allir í göngufæri við háskólasvæðið.

Nýjustu byggingarnar eru í Kjalarsíðu, en þar voru 40 íbúðir í tveimur húsum teknar í notkun haustið 2008.

Sérstakar reglur gilda um úthlutun nemendahúsnæðis, en öllum nemendum er velkomið að senda inn umsókn. Umsóknarfrestur um vetrarvist rennur út 20. júní ár hvert, en ef óskað er eftir sumarvist skal skila inn umsóknum fyrir 1. mars.

Á heimasíðu FÉSTA, www.festaha.is, er að finna allar upplýsingar um verð, stærð, staðsetningu og búnað íbúðanna/herbergjanna.

Þar er einnig hægt að nálgast umsóknareyðublöð.





Mér sýnist vanta Flash spilara hjá þér