Hvað er fjarnám?
Í fjarnámi geta nemendur verið búsettir annarsstaðar en á Akureyri þó þeir stundi nám við skólann. Fyrirkomulag fjarnámsins er mismunandi eftir greinum.
Hvað get ég lært í fjarnámi?
Boðið er upp á fjarnám í grunnskólakennarafræði, hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði, leikskólakennarafræði, líftækni, sjávarútvegsfræði, umhverfis- og orkufræði og viðskiptafræði. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér námsfyrirkomulag þeirrar greinar sem þeir hafa áhuga á, því fyrirkomulagið er mismunandi eftir greinum.
Hvenær rennur umsóknarfrestur út?
Umsóknarfrestur um grunn- og framhaldsnám, bæði staðar-, fjar- og lotunám, er til
5. júní. Allt nám við HA er lánshæft hjá LÍN.
Vegna innritunar um áramót er umsóknarfrestur til 11. desember.
Ef ég er með stúdentspróf af málabraut get ég þá farið í nám í líftækni?
Háskólinn á Akureyri gerir kröfu um stúdentspróf í allt grunnnám skólans og skiptir þá ekki máli á hvaða sviði stúdentsprófið er.
Hvað eru skólagjöldin há?
Það eru engin skólagjöld en skráningargjald er 45.000 kr. fyrir árið.
Ég er búsettur í Reykjavík en mig langar að fara norður í nám. Hvernig er að fá húsnæði á Akureyri?
Nemendur Háskólans á Akureyri geta sótt um að búa á stúdentagörðum hjá Félagsstofnun stúdenta
www.festaha.is. Í boði er allt frá einstaklingsherbergjum til þriggja herbergja íbúða. Sérstakar reglur gilda um úthlutun nemendahúsnæðis, en öllum nemendum er velkomið að senda inn umsókn. Almennt er fasteigna - og leigumarkaðurinn á Akureyri mjög góður og hægt að finna upplýsingar um leiguhúsnæði á Akureyri í Dagskránni
www.dagskrain.is.
Er ekki hægt að læra í fjarnámi í hjúkrunarfræði á höfuðborgarsvæðinu?
Þó að Háskólinn á Akureyri bjóði ekki upp á fjarnám í hjúkrunarfræði á höfuðborgarsvæðinu sjálfu hefur það verið í boði á Selfossi, í Reykjanesbæ og á Akranesi. Dæmi eru um að fólk af höfuðborgarsvæðinu nýti sér þau tækifæri og keyri á milli daglega. Ekki hefur verið ákveðið hvenær fjarnám í hjúkrunarfræði verður næst í boði til þessara staða, en líklegt er að einhver þeirra verði fyrir valinu haustið 2009.
Hvað er átt við með bakkalárstigi?
Bakkalárstig þýðir grunnnám (B.A., B.S. eða B.Ed.).
Ég er með stúdentspróf og langar að fara í kennslufræði. Markmiðið er að verða kennari í dönsku og íslensku. Hvað er best að gera?
Ef þú vilt vera kennari í dönsku og íslensku í grunnskóla er ráðlegt að fara í grunnskólakennarafræði. Ef þú vilt kenna dönsku og íslensku í framhaldsskóla myndi er ráðlegt að taka þessar tilteknu greinar til B.A. prófs og taka svo kennslufræðina til að fá kennsluréttindi.
Er hægt að stunda fjarnám í umhverfis- og orkufræði frá Akranesi?
Já það er hægt að stunda fjarnám í umhverfis- og orkufræði frá Akranesi. Námið er mikið sjálfsnám og óháð staðsetningu. Það fer að mestu fram í gegnum netið þar sem nemendur skoða upptökur úr kennslustundum, eiga samskipti við samnemendur og kennara og vinna verkefni. Í þeim námskeiðum sem eru samkennd með viðskiptafræði fer kennsla einnig fram í myndfundabúnaði. Verkleg kennsla fer fram í lotum á Akureyri. Lotur eru að jafnaði 2 á misseri í viku í senn.
Er í lagi að ég sendi inn umsókn án myndar, en sendi myndina síðar?
Já það er í góðu lagi. Við geymum bara umsóknina þar til myndin hefur borist.
Hvenær hefst nám á haustmisseri 2008?
Almenn kennsla á haustmisseri hefst skv. almanakinu mánudaginn 25. ágúst, en vikan þar á undan er nýnemavika (18.-22.ágúst). Æskilegt er að nýir nemendur mæti þar til að kynna sér þjónustu við nemendur, kynnast deildinni sinni, kennurum, samnemendum, félagslífinu og eldri nemendum.
Er tekið gjald fyrir afnot af þreksalnum í Sólborg eða er hann opinn nemendum skólans sem liður í heilsuforvörnum?
Þreksalurinn á Sólborg er opinn nemendum og starfsfólki án endurgjalds.