Félagslíf nemenda er einkar öflugt. Skipulagning þess er í höndum Félags stúdenta (FSHA) og nemendafélaga deildanna. Hápunktar í félagslífinu eru nýnemadagar, sprellmót, próflokadjamm, árshátíð og vísindaferð til Reykjavíkur.
Auk þessara atburða eru skipulagðar smærri vísindaferðir, kökukvöld, spurningakeppnir og margt fleira.
Hagsmunagæsla nemenda er einnig í höndum FSHA og nemendafélaga sem eiga fulltrúa á deildarfundum og í háskólaráði. Þess utan hittast stjórn FSHA, rektor, framkvæmdastjóri og gæðastjóri mánaðarlega og fara yfir ýmis málefni sem brenna á nemendum.
Þeir sem vilja kynna sér félagslíf háskólastúdenta á Akureyri geta skoðað www.fsha.is

Fara á www.unak.is
Fáðu sent kynningarefni
www.fsha.is