Mér sýnist vanta Flash spilara hjá þér

Nemendum býðst tækifæri til að taka hluta af námi sínum við erlenda samstarfsháskóla í gegnum nemendaskiptaáætlanir á borð við Erasmus og Nordplus. Auk þess er HA með tvíhliða samninga við nokkra háskóla utan Evrópu.

Alþjóðafulltrúi Háskólans á Akureyri hefur umsjón með nemendaskiptum sem og öðrum erlendum samskiptum og aðstoðar nemendur við umsóknir um skiptinám.

Netfang alþjóðafulltrúa er international(hja)unak.is.


Dæmi um lönd sem hægt er að dvelja í eru:
  • Finnland
  • Danmörk
  • Noregur
  • Svíþjóð
  • Færeyjar
  • Þýskaland
  • Austurríki
  • Belgía
  • England
  • Ítalía
  • Lettland
  • Bandaríkin
  • Kanada
  • Rússland
  • Kína
  • Pólland







Mér sýnist vanta Flash spilara hjá þér